Brandur, lendir í einelti Hæ ég og kærasta mín vorum að fá nýjasta fjölskyldu meðliminn í kattaflóruna okkur. Til að bæta upp missinn þegar Moli (tæplega 1 árs fress) strauk í burtu eða týndist. Þá björguðum við öðrum 1 árs fressi frá lógun… vinafólk okkar varð að losa sig við hann vegna ofnæmis og þau segja okkur að hann sé rosa góður köttur, góður við börn og yfir höfuð æðislegur. Við höfum nú kynnst því að hann sé algjört krútt og við erum búin að eiga æðislegar stundir uppí sófa að kúra og leika.

En allavega þegar við tókum hann, vildum við að hann yrði geldur og við fengum hann á sunnudegi og fengum tíma hjá dagfinni dýralækni á þriðjudagsmorgun, en máttum koma með hann seinni partinn á mánudeginum, fram að því að ég fór með greyið köttinn í geldinguna var hann gjörsamlega lagður í einelti. Við áttum þrjá ketti fyrir sem er 15 mánaða fress og eins árs læðu og einn 8 vikna kettling sem læðan á, sem við ætlum að eiga, og kjúlli (15 mánaðafressinn) og var svo sem um þetta( enda vanur að fá nýja ketti inná heimilið (kittý,mola og bombu systir hans) en kittý varð alveg brjáluð og er ennþá. Reyndar er fjarlægðin á milli þeirra að minnka og og hvæsin líka en samt kemur það fyrir 1-3 á nóttunni að maður vaknar við rosaleg slagsmál með öllum tilheyrandi látum. Er þetta ekki bara kittý að reyna vernda litla kettlinginn (bangsi) ? Ég held nefnilega að þau væru orðin sáttari við hvort annað eftir þennan tíma.

Kveðja EinarSig
www.simnet.is/kisur/
live web cam og myndir.