*snip*
Sko herferðirnar sem ég hef í huga er að góma ketti og fara með þá á Kattholt (þó ég hafi mjög slæma reynslu af þeim stað).
*snip*

Þetta var sagt í fyrri grein og er eitt dæmi af mörgum sem ég hef heyrt hérna á Huga.is
Hvernig var sú slæma reynsla ? Kattafólk og aðrir tala illa um Kattholt en segja aldrei hvað málið er. Ég er búin að vera með ketti í níu ár og hef haft mikil samskipti við fólkið í Kattholti og það huxar alltaf fyrst og fremst um köttinn en ekki fólkið sem á hann.
Ég vil endilega fá að heyra þessar Kattholtssögur svo ég geti borið hönd fyrir höfuð þessa yndislega fólks sem er að fórna sér fyrir kettina okkar.
Kveðja,
IceCat