Að dansa með köttum
Halló kattavinir!
Ég sá frekar athyglisverða bók í Bókabúðinni við Hlemm fyrir nokkru. Bókin hét Dancing with Cats eftir Burton Silver og Heather Busch. Ég veit ekki hvort að einhver hér viti út á hvað þetta gengur en þetta er fólk að dansa við kettina sína og út frá þeim fjölmörgu myndum í þessari bók þá virðist þetta vera bara mjög skemmtilegt! Ég leik mér oft með kettina mína en hafði aldrei áður “dansað” við þá, eins og Heather & Burton kalla það. Ég prufaði þetta fyrir nokkru og ég get sagt með sanni að þetta hefur mjög góð áhrif. Kettirnir mínir urðu strax glaðari og þeir byrjuðu að éta aftur af miklum áhuga (þeir höfðu orðið ansi grannir vegna lítillar matarlystar). Sumir sem að gera þetta klæða sig og kettina sína í föt til að gera þetta meira spennandi en ég veit ekki hvort ég sé tilbúinn að fara svo langt en það hljómar skemmtilega.

Ef að einhver er til í að stofna lítil félagsskap af fólki sem hefur gaman af þessu þá má hann endilega hafa samband.

-Jóhann