Fyrir u.þ.b 2 árum var keyrt yfir kisuna mína. Hún var ekki orðin 5 mánaða. Fjölskyldan mín hafði fengið hana gefins einum mánuði áður. Þetta var mikil sorg og er enn.
En það sem meira var, sá sem keyrði yfir hana keyrði í burtu. Hún var enn á lífi. Annar maður kom og sá köttinn, tók hann inn í bílinn sinn og fór eins og skot upp á dýralæknastöð. Hún dó á leiðinni.
Ég mun aldrei fyrirgefa manninum sem keyrði yfir kisuna…..
og þeir sem keyra yfir kött í framtíðinni, farið með þá upp á dýralæknisstöð, ekki skilja þá eftir í þjáningu.