Jeep Wrangler 35" Jæja mér finnst þetta vera alltof dautt spjall þannig að ég ætla að senda inn mynd af bíl sem frændi minn á. Það væri svo frábært ef eitthverjir myndu feta í mín fótspor og senda inn myndir af sínum bílum eða hjá eitthverjum sem þeir þekkja, ásamt upplýsingum, breytingum og fleyru ef það á að breyta meira:D

En þetta er semsagt Jeep Wrangler 97árg
Frændi minn keypti hann rétt áður en hann fékk prófið og er hann búinn að eiga hann núna í rúmlega eitt ár.

Það er 2.5L vél en það er efst á óskalistanum hjá honum að fá sér stærri og öflugri vél í hann

Breyttur fyrir 35“ dekk
ekinn í kringum 90þús mílur

Þetta er helvíti skemmtilegur bíll, hann var að pæla í að breyta honum meira, fara uppi 38” en svo er hann hættur við það, ætlar bara að dekra við hann og gera hann flottari..
Held að núverandi breytingarlisti hjá honum núna er:
GPS tæki(hann á það til bara eftir að setja það í)
Fá betri hlutföll(Er með original hlutföll)
Fá sér kastara
Held að hann hafi líka verið að pæla í að fá sér brúsafestingar aftaná bílinn þarsem varadekkið á að vera:D