Jeep Willys 1963 Já þetta er bifreið sem er í minni eign. Um er að ræða Jeep Willys frá árinu 1963. Hann er nú ekki orginal því miður en í honum er mjög slæm volvo b20 vél og lödu vatnskassi. Er að gæla við að setja aðra vél í bílinn og halda mig við volvoinn og fá mér volvo b21. En það er heljarinnar vesen þar sem ég þarf að breyta mótorfestingum og færa stýrissnekkjuna.

Felgurnar sem eru undir honum eru tímabundið þetta sumar. Á von á nýjum og flottum felgum í haust ásamt nýjum dekkjum. Planið er líka að mála hann í sumar eða í vetur og laga því riðið og allt jukkið.

Annars þá lítur hann nú mun betur að innan en utan. Hann er nýinnréttur að innan, vel fóðraður og flottur. Aftursætið er orginal og algjörlega óeytt og fínt. Hinsvegar eru framsætin ekki úr willys.