Fyrir þá sem ekki vita þá er að koma mynd byggð á Doom seríunni frá engum öðrum en Universal Studios. Tökur á myndinni eru senn að hefjast, leikstjórinn er Andrzej Bartkowiak (Cradle 2 the Grave, Leathal Weapon 4, Speed) en lítið hefur heyrst um leikara í myndinni, fyrir utan að Karl Urban (Eomer úr The Lord of the Rings) sé í einu hlutverki.

Myndin á að fara í sýningar í lok næsta árs… og nú er bara að sjá hversu mikið af djöflum og blóði þeir koma á hvíta tjaldið!