Hibb.

Það hefur það skeð, ég er frelsaður…
Ég er frjáls (eins og Elton John sagði Yellow brick Road)..

Já, ég skal tjá mig, ég skal eigi þegja.

Ég fór á samkomu, þar voru prestar, þar voru nunnur, þar voru sálir guðs.
Mér fannst ég ekki eiga heima þar, fyrr en presturinn sagði
“Fyrirgef oss, oss sem syndir berum”..

Ég grét, ég táraðist, ég fékk gæsahúð, ég fann mig fljúga…
Mér var huxað til Rocket jumps, þar flýg ég….
Grenade lunch er ekkert fyrir mig lengur, það er synd.
Rail Jump er ekki til.

Mér var huxað til þeirra daga sem ég syndgaði.
Að drepa mann og annan er ekki gott.
Ég hef séð ástæðuna fyrir því að ég dey svona oft í quake.
Ég vil ekki drepa, í raun hef ég látið lífið í quake svo oft að það er eigi hægt að telja það.
Málið er það að ég miða á einhverja sál, ég hef það bara ekki í mér að skjóta.
þannig að sá hinn sami sem var í mínu miði, drap mig.

Já, það segir meira um hann en mig.
Vonandi eftir að hafa lesið þetta þá fáið þið samviskubit þegar þið drepið mig.
Ég gat skotið þig, en gerði ekki……..

Ég er í raun besti quake spilari á landinu en ég spila á vegum guðs,
Og guð vil eigi deyða menn.

Já, þetta minnir mig á þegar ég spilaði sem “Priest Zero”.
Aldrei sá ég tilgang minn á þessari tölvuöld,
Aldrei sá ég það sem ég átti að sjá.
Priest Zero segir allt sem segja þarf, ég var að störfum.

Ég sé það núna, þannig að ef þú mættir mér á server.
Sýndu þá hvað í þér býr og skjótu eigi, því ég er vinur þinn.

Ég veit að ég kalla mig X-Rated og margir gætu haldið að það væri eitthvað dónalegt.
Það er það og mun ég breyta þessu nafni í eitthvað sem guð vill.

Annað, vitiði að klám og dónamyndir eru guðlast ?
Ég veit það og þessvegna reyni ég að downloada þessu öllu frá ykkur.

En, ég hef komist að því að download hreinsar ekki tölvuna hjá þeim sem ég downloada frá.
Ég vil fá forrit sem gerir þannig, hreinsar þann sem syndar. Ég skal frelsa þig !!


Viltu frelsast ?


Eða….

Ekki.

ps. that´s what I think :)


Kveðja
X-Rated