Já ég spyr er ICE litli ljóti andarunginn í Q3A samfélaginu hérna heima ?.

Þeir hafa unnið CTF síðustu 3 skjálfta og enginn hefur hampað þessum árangri þeirra en menn hafa verið þess duglegri við að hampa sigrum annara.
Nú ekki mun ég gera lítið úr árangri annara en mér finnst skrýtið að ICE fái litla athygli fyrir sinn árangur sem er stórmerkilegur núna þegar þeir mæta með lið sem hefur ekkert spilað saman og með einn utanaðkomandi varamann.

ICE hefur misst 5-6 leikmenn síðan á skjálfta 3 og enginn átti von á því að þeir myndu vera í toppbaráttunni þennan skjálfta (ekki ég heldur). Því þykir mér árangur þeirra þess merkilegri með tilliti til þessara breytinga innan klansins. Hvernig væri að við myndum nú klappa fyrir ICE og muna eftir þeim þegar talað er um þá bestu sem hafa komið á skjálftamót ?. Það er ekkert grín að taka 3 mót í röð og vera í 2-3 sæti líka með önnur lið. Eru ICE menn ekki með þeim bestu í Q3CTF hérna heima ? allavega er árangurinn að benda til þess.

zlave