Á skjálfta5.simnet.is:27910 og 27912 eru núna keyrandi AQ þjónar sem eru eins upp settir og þjónarnir á mótinu verða. Eina sem á eftir að gera er að slökkva á rcon og lrcon fyrir leikmenn (enginn leikmaður, þar á meðal ég og Bandi, munu hafa rcon eða lrcon á mótinu (sem er eins og venjulega))

Á síðustu tveim skjálftum hefur JB1.28 útgáfan verið notuð og í þetta skipti verður JB1.29 notuð. JB 1.29 hefur verið í hangi á S4 undanfarið. Munurinn á milli 1.28 og 1.29:

limchasecam hefur verið lagað og er lagglaust.
Single barreled HC úr TNG komin inn.
Nýja kill tracking systemið úr TNG komið inn. (%K man núna mörg kill)
NO CAMPING ‘Fool’ skilaboðunium breytt í nokkra random strengi
Grensurnar úr TNG eru inni og þær eru tvær (Ofurgrensur, já)
Ef menn velja sniper sem aðalvopn, þá byrja menn með hann í höndunum (TNG fídus)
Menn stökkva eigi lengur til að sanna ást sína á Sumarstúlku, heldur skjálftapimpum almennt (Sorry SS ;)

Bara heilaga þrenningin er í rotation og bara hægt að vóta um heilögu þrenninguna. Map og kickvoting þarf 51% til að ganga í gegn.

Dats about it. Endilega testiði serverana og ef það er eitthvað (annað en að ég sé þurs, asni og/eða svindlari) látið mig þá vita.