Dominic Depill Þessi kútur kom til mín 15 Nóvember þegar hann var 3 og hálfsmánaða en fyrri eigendur voru að losa sig við hann til að fá sér annann hvolp!

Hann er ROSALEGA gáfaður en hann er blanda af tveim hreinræktuðum hundum… en af sínhvoru kyninu, tíkin er Labrador og rakkinn er Border Collie.

Á stuttum tíma er hann búinn að læra að Sitja, Liggja, Hoppa, Sækja og Rúlla, hann veit einnig að þegar ég segi Niður á hann að fara af sófanum eða rúminu.
Erum t.d að læra núna að láta mig vita með bjöllu þegar hann þarf að fara út því að ég á það til að sökkva í vinnuna mína :o

Hinsvegar áttum við við smá aga vandamál að stríða en það var ROSALEGA erfitt að gera hann húshreinann… það tók án gríns TVO mánuði! En er allt í sómanum núna.