Hann er komin til mín! 1.dagur Jæja þá er litli Sámurinn minn komin til mín, loksins! :)
Svo nú hefst bara planið mitt!
Hann kom reyndar bara um 11 leitið í kvöld svo það er ekki mikið sem við erum búin að gera, en mamma þreif báða dallana hans með steinull, til að ná öllu jukkinu úr. Svo vorum við að koma inn úr kvöldgöngunni okkar! Rosalega var hann ánægður að fá svona nýtt umhverfi til að pissa í, dillandi rófa og allt saman :)
Síðan komum við, tókum nokkrar myndir og ég gaf honum 5 kókópuffs. Síðan fljótlega förum við bara í háttinn og vöknum hress í fyrramálið.
Á morgun verður sko farið í bað, klippingu og klærnar kliftar, þvílíkt dekur!
Ef þið viljið fá daglegar fréttir hvernig gengur, þá er ég sko vel til í það að leyfa ykkur að fylgjast með :)

Hulda og Sámur (sem ætlar að verða úber hress innan skams)