Bara ein gömul frétt af Baggalút sem ég rakst á áðan og þykir með þeim betri ;)


Maður á fertugsaldri var færður á slysadeild eftir að hafa hlegið sér til óbóta. Að sögn nágranna hans sem kom að honum er líklegt að hann hafi ætlað að svipta sig lífi, en mikið magn skemmtiefnis fannst í íbúð hans. Má þar nefna ólöglegar upptökur af áramótaskaupi RÚV, hljóðsnældur með æringjunum Gunna og Felix, mikið notuð eintök af stefnuskrá Samfylkingarinnar og bókinni ‘Allt í Gamni’ eftir Hermann Gunnarsson.
Það sem þó virðist hafa gert útslagið er forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag - þar sem Davíð Oddsson boðar skattalækkanir.

Með fréttinni fylgir mynd af þessum gæja, sexy bastard hér á ferð ;D
www.baggalutur.is/images/frettir/frett-hlomattlaus.jpg