Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin
og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann
var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að
spyrja hann aukaspurningar.

“Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar
aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn
fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?”

“Enginn”, svarar Jói.

“Hvað meinar þú… enginn?”, spyr kennslukonan?

“Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu” segir Jói

Kennslukonan kinkar kolli og segir “svarið átti nú að vera 4, en mér
líkar hvernig þú hugsar”

Örstuttu seinna réttir jói litli upp hendi.

“Já Jói”

“Má ég spyrja þig einnar spurningar?”

“Endilega” segir kennslukonan.

“Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein
af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein
af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?” Spyr Jói

Kennslukonan roðnar og segir, “Eee….ég veit ekki alveg, ætli það sé
ekki sú sem sýgur ísinn?….eða eitthvað”

“Neeiiii” segir Jói litli, “það er sú sem er með giftingarhringinn, en
mér líkar hvernig þú hugsar”*