Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inn í svefnherberginu,klæddan í hvítan kufl. “Hvað í andskotanum er þú að gera í svefnherberginu mínu ?” segir Eddi reiður. “Þetta er ekki svefnherbergið þitt,” segir maðurinn, “þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur.” “HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja. ég er allt of ungur og á eftir að gerasvo margt,” segir Eddi. “ Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!” “Það er nú ekki svo einfalt,” Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið tilbaka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað. Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf. “Ég vil snúa aftur sem hæna…” samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hva ð honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa! Þá kemur haninn…. “Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það? ”Allt í lagi býst ég við“ Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa! ”Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður? Nei hvernig geri ég það? “Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli” Svarar haninn. Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa. skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu. “Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu. Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: ”Vaknaðu Eddi, í öllum bænum. Þú ert búin að skíta út um allt rúm!


Tvær konur voru að labba saman á Laugaveginum og þekktust býsna vel þar sem að þær unnur báðar í Húsasmiðjunni. Um eftir 20 mínútna gang um Laugaveginn stoppa þær fyrir framan styttubúð með allskonar keramik styttum! Þær ganga inn fyrir að byrja að skoða. Allt í einu kallar ein konan á hina og hvíslar lágt að henni: Sjáðu=) Svona gerði yfirmaðurinn við mig í síðustu viku og meira en það, það var einhver annars með í spilunum sem ég fékk ekki að vita hver var enda var ég með bint fyrir augun. Leit þá hin konan á styttuna og liggja þá karl og kona í kynlífstellingu, maðurinn að runka henni fast að aftan! Konan verður skrýtin á svipinn svo hin fer að forvitnast. Hvaa..hvaa er að þér! Skeytir þá konan út úr sér! Ekki varð það á þriðjudeginum því einmitt þá var stjórinn að runka mér eins og rottu, stunurnar voru hrikalegar og það var einhver með sem ég fékk ekki að vita hver var því hann var með bint fyrir augun



Þrjár systur 92.ára, 94. ára og 96.ára búa saman í litlu húsi. Eitt kvöldið lætur sú 96. ára renna í baðið. Hún setur annan fótinn ofan í baðið þegar hún hinkrar og kallar niður “stelpur var ég að fara ofan í baðið eða var ég að koma úr því”?? Sú sem var 94. ára kallar til baka “ það veit ég ekki , ég skal bara koma upp og athuga málið” Síðan byrjar hún að ganga upp stigann upp á efri hæðina. Þegar hún hinkrar og kallar “heyrðu stelpur var ég að fara upp eða var ég að koma niður”?? Sú sem var 92. ára situr við eldhúsborðið og drekkur te og er að fylgjast með samræðum systra sinna. Það hnussar í henni og hún hristir hneyksluð höfuðið um leið og hún segir við sjálfan sig. “ Ég ætla bara rétt að vona að ég verði aldrei svona agalega gleymin eins og þær systur mínar”. Síðan bankar hún undir borðið og segir: “sjö, níu , þrettán”. Hún kallar svo til systra sinna " verið rólegar ég skal koma upp og hjálpa ykkur við að leysa úr þessu um leið og ég er búin að athuga hver er að banka við dyrnar.
Maybe this world is another planet's hell.