Sköpunarverkið fullkomnað

Lykla Pétur og Guð eru að leggja síðustu hönd á konuna áður en að þeir setja hana á jörðina.
“Taugaendarnir,” segir Pétur. “Hvað eigum við að setja marga í lófa hennar?”
“Hvað settum við marga í Adam?” spyr Guð.
“Tvo hundruð, ó þú mikli Guð,” svarar Pétur.
“Þá gerum við það sama fyrir hana,” segir Guð.
“Hversu marga taugaenda ættum við að setja í kynfæri hennar?”
spyr Pétur aftur.
“Hvað settum við marga í Adam?” spyr Guð.
“Fjögur hundruð og tuttugu, ó þú mikli Guð” svarar Pétur.
“Auðvitað, við settum svona marga til að Adam gæti fjölgað mannkyninu og fundist það gott í leiðinni, var það ekki? Gerum það sama fyrir konuna.” segir Guð.
“Já, ó mikli Guð,” segir Pétur.
“Nei bíddu,” segir Guð. “Skítt með það, láttu hana hafa tíu þúsund. Ég vil
að hún æpi nafnið mitt!”