Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín
eina Thælenska úr póstlistanum “Einn með Öllu”. Hann veit ekki alveg
hvernig
hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir
slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina “Ein með
Öllu”. '

Heyrum nú hvað þeim fór á milli.  Sölumaður (S)  Jón bóndi (J)
RING RING

S      “Ein með öllu” góðan daginn,

J       Já,  góðan  daginn.  Ég fékk hjá ykkkur “Eina” núna um daginn og
ég er í helvítis  brasi  með  hana. Ég kann nú bara  ekkert á hana. Ég held
að hún sé  tælensk…..

Neiii…. Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur
hún
að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?

J       Hún heitir Hí un Dæ, held ég. Hún er allavega með merki framan á
sér sem á stendur. Hí un Dæ.

S      Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?

J       Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað
í allan dag en ekkert gengið.

S      Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?

J       Já,  hún  stendur  hérna  alveg “nettó ”fyrir framan mig og ég
bara veit ekkert hvað ég á að gera næst.

S       Mér  finnst  nú  alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég
nota þær. Annars þreytist maður svo fljótt í bakinu.

J      Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!

S      Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin
heit.

J       Ég  er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg
víðast hvar…

S      Hvernig týpa er þetta annars? 486?

J      Tja- 6 og ekki 6…Það sem ég var með í huga var bara svona
venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir
svona seinna meir…

J      Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og
færa
hana rólega þangað til að “bendillinn” er kominn þangað sem þú vilt.

J      Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á
meðan við erum að kynnast?

S       Nei  nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina
þannig að þú fáir það sem þú vilt.

J        Jæja , það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af
hárum á músinni !

S      Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga.
Hvernig er annars minnið í henni?

J      Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær

S      Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?

J        Harðan.  Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er
ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !

S       Hvað er hann stór“”?

J      Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi! ! ! !

S       O.K.  gott,  þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann.
Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?

J      Hvað meinar þú með drif??????

S      Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drif…

J      Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum

S     Já,  rifan  er  til  þess  að  bæta  í  hana einu og öðru. Þú
stingur bara floppinum inn og svo er það bara “run” og “enter”.

J     Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti
verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég! ! !

S      Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði
geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á
þig !

J      Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá
hugsun til enda.

S      Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst.

J      Það hlítur að vera ósköp sárt! ! ! ! !

S      Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?

J      Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er
að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt.

S      Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að
nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur.

J      Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?

S      Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar.

J      Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð?
Hún Híun Dæ???

S       Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega
þrælgóð. Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með
hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí! ! !

J      Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið…..

S      Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu.
Margir skipta á svona tveggja ára fresti…

J       Heyrðu,  ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég
tilbúinn til  þess að hjóla í hana….

S    Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á
staðinn og hjálpa þé