Final Fantasy áhugamálið kom upp á þeim tíma sem Hugi var lítill og frjósamur og nógu margar undirskriftir nægðu til þess að gera áhugamál. Sá tími er löngu liðinn, hins vegar.
Annars er Final Fantasy áhugamálið ekki dautt enn sem komið er, til að mynda komu inn 11 greinar inn á áhugamálið í nóvember, miðað við fjórar GTA tengdar greinar sem fóru inn á Leikjatölvuáhugamálið á sama tímabili. Efnisinnihald greinanna á FF voru úr ýmsum leikjum og fjölluðu um söguþræði, persónur og fleira, á meðan GTA greinarnar voru umfjallanir (2), klíkurnar (1) og almennt innihald (features, 1 grein).
Allaveganna sýnist mér umræðumöguleikarnir vera mun fleiri hvað Final Fantasy varðar…