Ókei hlutir sem mig langar til að muna en man ekki ég veit að ég er mjög sorglegur að setja þetta hérna inn hehe ;) en ef þið ætlið að svara einhverju af þessu setjiði númerið fyrir framan til þess að ég geti fattað hvað þið eruð að tala um.

Jæja núna byrjar þetta

1. Rétt fyrir jólin er alltaf spilað lag sem einhvernvegin “Búum til betri heim sameinumst hjálpum þeim sem minna meiga sín þau eru systkyn þín” eða eitthvað álíka, hvað heitir það lag ?


2. Þegar ég var yngri sá ég mynd um barn sem datt ofan í brunn eða einhverja borholu eða eitthvað og enginn komst ofan í til að bjarga því og það var fult af fólki að reyna að bjarga því og svo á endanum var því bjargað og það lifði af, hvað heitir sú mynd ?


3. Önnur mynd sem ég man eftir það var svona svertingja fjölskylda sem var að vinna fyrir eitthvað hvítt fólk og svo komust þau að því að þessi fjölskylda sem þau voru að vinna fyrir voru í ku kux klan það kom lítil stelpa fram í svona KKK búning og þau spurðu hvar fékkstu þennan búning og hún sýndi þeim í einhverja kompu þar sem var svona búningar á alla famelíuna meira segja svona rauður foringjabúningur á kallinn og svo var líka eitt atriði sem svarta konan (hún var ólétt) sér að littla stelpan er farinn inn til hunda sem eru stórhættulegir sem pabbi stelpunnar átti og svarta konan lemur hundinn með múrstein og bjargar stelpunni og dettur svo um einhverja kerru og missir barnið. Er einhver að kveikja, veit einhver hvað þessi mynd heitir ?


4. Man einhver hvar maður getur keypt jawbreaker brjóstsykurinn eða er það alveg hætt kanski ?


Jæja þetta er allavega allt í bili ég kem eflaust með meira næst hehe ;) það yrði vel þegið ef einhver gæti svarað þessum spurningum