MTA áhugamál.
Ég veit að það hefur komið póstur hingað áður um þetta en ég og Mangudai viljum endilega fá MTA áhugamál svo að það komi einhver stuðningur við þennan leik á Íslandi. Auðvitað skiljum við að JReykdal hoppar ekki til þegar fólk biður um áhugamál og hefur hann sagt að hann vilji ekki hafa áhugamál fyrir einstaka leiki.
En það er þá hægt að segja margt á móti, hann vildi til dæmis ekki hafa Call of duty áhugamál þar sem einn leikur á erfitt með að reka eitt áhugamál þegar hann er varla spilaður á Íslandi og komu margir með mjög góð rök sem mæltu gegn þessu hjá JReykdal og eiga flest þeirra einnig við MTA áhugamál. Síðan er líka sú skemmtilega staðreynd að Skjálfti heldur úti 2 leikjaþjónum og eins og sást á póstinum sem Mangudai sendi inn vita voða fáir um þann þjón og finnst mér það persónulega vera synd þar sem þessi leikur er mjög skemmtilegur.
Ég held innilega að þessi leikur eigi skilið áhugamál, bæði þar sem allir vita að fleirri munu byrja að spila leikinn ef fólk veit bara að hann sé til og að það sé haldið úti íslenskum leikjaþjónum fyrir þá. Einnig held ég að hægt sé að halda miklar umræður um þróun MTA forritsins og einnig um aðferðir sem fólk notar í MTA. Einnig er hægt að tala um “gengin” sem eru í gangi hverju sinni en í dag eru þrjú aðalgengi á serverum MTA. Ber það fyrst á góma Cartel en í því erum ég, Mangudai og fleirri strákar. Svo var stofnað gengi er heitir Íslenski herinn og sést inná server undir $#$ en það var stofnað til að veita Cartel mótspyrnu þar sem við vorum að drepa flesta á servernum. Einnig er klíka sem hefur aðeins 2-3 meðlimi eins og er sem heitir RK en þeir spilarar sem eru þar eru mjög active.
Admin á MTA serverum skjálfta
MTA: C/Crazy_Dog | The Cartel Gang.
{E-mail}
Carrera GT