Hvernig væri að fá kaffibrúsaáhugamál ?
Þar sem að áhugamenn um kaffibrúsa geta sest niður og rætt málin.

Sjálfur á ég Thermos brúsa, svona köflóttur afabrúsi(held hann sé með tvöföldum þéttigúmmíi, nenni ekki að fara fram og gá) einkar skemmtileg smíð þar á ferð.
Hentugur í vinnuna, já eða í veiðitúrinn… heldur heitu vel og lengi.

Einu sinni missti ég hann í á og ennþá var kaffið heitt… já ég skal segja ykkur að það er saga í kringum það.
En hún er of löng þannig að ég læt gott heita.

Þetta áhugamál væri sérdeilis prýðilegt.<br><br>—————————-
“Cannot join #real-life (invite only)”

Creed er ekki hljómsveit, hún er sírenuvæl!
(Hehehehe:)