Sæl öll

Að undanförnu hefur mér fundist greinaskrifin í ýmis áhugamál og þá fótboltaáhugamálin sérstaklega einkennast af hreinum Copy / Paste af ýmsum íslenskum bolta- og fréttavefjum.

Ég vil minna á að slíkt er hreint og klárt höfundarréttarbrot og er refsivert með sektum kjósi raunverulegur höfundar að fara í hart og kæra.

Greinar á hugi.is eru fyrir skoðanir ykkar og fréttir sem þið viljið koma á framfæri.

Þetta er gert fyrir ykkur sem eru “huguð”, ykkur sem viljið taka þátt í að mynda vefsamfélag um áhugamál ykkar.

Það er þeim til minnkunar sem það gera að senda inn kóperaðar greinar, það dæmir sig sjálft.

kv.
DaXes