Rowling: “Dumbledore er samkynhneigður”

J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, upplýsti í gærkvöldi að ein aðalpersónan í bókunum, galdrameistarinn Albus Dumbledore, væri samkynhneigð. Greindi hún frá þessu eftir að hafa lesið úr nýjustu bókinni fyrir fullu húsi í Carnegie Hall í New York.

Einn áheyrendanna spurði hvort Dumbledore tækist að “finna sanna ást,” og svaraði Rowling þá: “Dumbledore er samkynhneigður.” Áheyrendur gripu í fyrstu andann á lofti, en síðan var klappað.

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1298009