Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

stuff (13 álit)

stuff ætla aðalega monta mig að krepputraðkborðinu sem ég bjó til sjálfur þarna annars eru þetta frá vinstri:

- epiphone explorer 58'
- korg pitch black tuner
- vantar boss noise suppressor
- boss chorus ensemble
- digitech metal master…
- dime crybaby wah
svo magnarinn er eitthver marshall 30w sem ég er með í láni og svo er stóri magnarinn í æfingarhúsnæðinu sem er fender fm dsp212

Dótið mitt. (9 álit)

Dótið mitt. Gítarar:

Seagull Kassagítar
ESP Horizon NT-II
Epiphone Dot
Gamall 12 strengja kassagítar

Bassar:

Tesco Acoustic Bass
Fender Jazz Bass

Magnarar:

Peavey og vox ad30vt

Glittir svo í Pod x3 þarna neðst

Nýji magnarinn! (27 álit)

Nýji magnarinn! Þetta er nýja tryllitækið mitt.

Fender VibroKing úr Fender custom shop.
Liturinn er Blonde tolex.

2x JJ 5881 í kraftmagnara
3x NOS tungsol í formagnara
1x el84 fyrir reverbið
2x NOS tungsol fyrir tremoloið

3x “10 Alnico reissue ”blue frame“ speakers

60w into 2ohm

Ekki má gleyma að það er basically eitt stykki ´63 fender reverb unit, innbyggt í kvikindið :)


Headroomið í þessum magnara er gígantískt og sándið ólikt öllu öðru sem ég hef spilað í gegnum.
Reverbið er gersamlega to die for, og tremoloið mjööög vintage… ekki fyrir alla þar sem það er frekar frumstætt;)
Ég ætlaði ekki að trúa hversu gífurlega kraftmikill þessi magnari er, sérstaklega þar sem hann skartar ”aðeins" 3 tíu tommum.
Ef ég hækka hann eitthvað mikið meira en 3 á volume-inu, þá fer ég að yfirgnæfa trommarann :D

Eitt sem er mjög spes við þennan magnara, er það að volume-ið kemur á undan EQ tökkunum á rásinni, þannig að EQ takkarnir eru basically master volumes í stað þess að breyta tíðninni.
Ég get t.d lækkað alla EQ takkana í minnsta, hækkað svo volume-ið í botn og set svo EQ á 1-2, sem gerir það að verkum að ég er kominn með urrandi lampa overdrive á þolanlegu volume-i.
Ótrúlega fjölhæfur miðað við magnara með eina rás.

Svo best sem ég veit, þá er þetta eini magnari sinnar tegundar (og hvað þá í blonde tolex sem er miklu sjaldgæfara) hér á Íslandi. Ég veit að það er einhver sem hefur smíðað svona gaur, hér á fróni, en þetta er víst sá eini sem hefur komið original frá fender custom shop, hingað til lands. (correct me if I´m wrong)

Endilega slettið á mig spurningum:)

Einnig hefur effectabrettið tekið smá stakkaskiptum.

Holy grail
Seymour D - Deja-vu delay (nýr)
Peterson - strobo stomp II tuner
Sweetsound - Mojo Vibe
MXR - CEA boost/overdrive (nýr)
Zvex - Mastotron
Way Huge - Swollen Pikkle Jumbo Fuzz (nýr)
MJM - London Fuzz

Kv
Gunni Waage

Voff (23 álit)

Voff Var að bæta tveimur nýjum í safnið og hér er hópmynd og hvernig ég er með þetta sett upp af því tilefni. Big Muff Pi Usa og Semour Duncan pickup booster eru þeir nýju.

Japanir... (16 álit)

Japanir... Japanir hafa gjarnan svolítið sérstakan smekk þegar kemur að útliti á hljóðfærum. Þetta er ESP signature gítar hans (eða hennar, er ekki viss) Sakito úr hljómsveitinni Nightmare, sem ég veit engin frekari deili á.
Þess ber að geta að þessi gítar er í útflutningsvörulista ESP, svo Tónastöðin ætti að geta reddað áhugasömum kaupanda eintaki :P

http://www.espguitars.co.jp/oversea/

annað trivia (19 álit)

annað trivia jæja þessi er reyndar svona í þyngri kanntinum en endilega giskiði samt :)

Trivia (10 álit)

Trivia Who is?

Lego trommur (10 álit)

Lego trommur Awesome Lego trommusett!

James Hetfield (17 álit)

James Hetfield Það kannast nú allir við þennan. Hinn frægi söngvari Metallica.

Það sem ég vil forvitnast um er hvernig LP hann er að spila á?

Teisco ofl (8 álit)

Teisco ofl Ég keypti þennann Teisco gítar af einhverjum gaur héðan af huga fyrir 10.000 kall, hann var ónothæfur í allt annað en slidegítarleik af því að hálsinn var rammskakkur og nuttið var brotið, ég var að fá kvikindið úr viðgerð áðan og hann er örugglega betri núna en þegar hann kom af færibandinu í japan árið 1960 og eitthvað.

Ég prófaði hann áðan í gegn um græjurnar sem eru á bakvið hann á myndinni, þetta er 5 vatta Gretsch Electromatic lampamagnari sem ég tengdi í Marshallbox með 4 Celestion Greenback hátölurum, ég var með Boss DS-1 distortionpedala með bjögunina á svona 1/3 af því sem hann býður uppá svona rétt til að bæta örlitlum skít í sándið og hljómurinn var svona eins og beint af blúsplötu frá í kringum 1960, það er frekar lítið sustain í þessum gítar en samt alveg nóg, það er mjög smart sánd í þessum furðulega útlítandi pickuppum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok