Sæl veriði öllsömul.

Ég er að leita að bassaboxi fyrir böndin mín. Við erum með fínasta 400w Ampeg haus á svæðinu en boxið kúkaði á sig eftir alveg einstaklega epíska tónleika fyrir nokkrum árum. Allavega skeit það í sig í hinsta sinn núna um daginn sem þýðir það að okkur vantar eitthvað sæmilegt box undir magnarann.

Ég er að spyrja fyrir hönd hljómsveitarfélaga míns þannig að ég þarf eiginlega að bera öll tilboð undir hann. Hann tók ekki fram neina sérstaka tegund eða neinar sérstakar keilur, þannig að allt sem er nógu kröftugt undir 400w magnara kemur vel til greina.

Skjótið að mér boxum hér, í einkapósti eða í síma 8491638.