Við í Lockerbie erum akkurat núna í hljóðverinu Sýrland í Skúlatúni að taka upp.
Fengum frítt að taka upp með hljóðmanni 2 daga vegna keppni í Popplandi, sumar í sýrlandi, og skemmtum okkur vel.

Klukkan er ekki margt á degi 1, allt gengur vel og hljóðmaðurinn, Vignir sem var meðal annars í Írafár, er sáttur og það er góðs viti.

Búnir að taka upp trommur, bassa, tuma(klikkuð tromma sem gerir læti og píanó. Strengir, brass, gítar og söngur eftir.

Ef einhverjar hljómsveitir vilja taka upp þá er um að gera að vera með á næsta ári eða panta bara stúdíó tíma því þetta er klikkað! Allt fullkomið frá toppi til táar, það sem komið sound-ar mjög vel og getum við vart beðið eftir útkomunni.