Sæl veriði öllsömul.<br>
Ég vil benda ykkur öllum á að fara að róa ykkur aðeins í innsendum könnunum. Ég er ekki með þessu að banna ykkur að senda inn en þar sem það margar eru í biðröð (10 kannanir og 3 dagar á milli kannana) eru þær búnar að missa gildi sitt þegar þær loksins koma fram á síðunni. Ég vil td. nefna að í biðröðinni núna er könnun sem hefur titilinn: hvada lid er liklegast ad vinna skjalfta ?<br>
Ég hvet ykkur hins vegar að koma með góðar og ígrundaðar kannanir um td. málefni sem fólk hefur mikla þörf fyrir að tjá sig um. Þá gætum við stjórnendurnir hent þeirri könnun fremst í röðina. En ég vil benda á að það þarf mikið til að svo gerist :)<br>
Skemmtið ykkur !
Dreitill Dropason esq.