Halló halló.

Mér tókst að stela tölvunni hans Svenna ElgTanaða til að koma með nýtt og sjóðheitt skúbb. Í dag erum við búnir að setja upp öll borðin, switchar og netkaplar eru að koma upp í gagnið og svo förum við vonandi sem fyrst í rafmagnið og klárum það.

Eftir það er eiginlega lítið annað að gera nema setja upp serverana og annan búnað og þá ætti allt að vera klárt fyrir ykkur elskurnar þegar þið mætið klukkan um 14:00 á föstudaginn.

Annars er þetta búinn að vera langur dagur svo allir eru drulluþreyttir svo ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra.

Ég vil kannski nýta tækifærið og segja ykkur frá myndasíðunni okkar www.lanmot.is/myndir sem mun vonandi koma upp í kvöld með sjóðheitum myndum af undirbúningslaninu og svo uppsetningunni í dag og á morgun.

Heyrumst hress.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius