Ég er tildurlega nýkominn hingað og svo virðist sem fyrsta umferðin byrji ekki klukkan 12:00 þar sem enginn annar admin er mættur nema Hlynur Netscream sem er hetja mótsins klárlega þar sem ég væri ekki að skrifa þetta hérna á VON borðinu ef hann hefði ekki lagað netið hjá bókstaflega öllum í húsinu.

Aðal slúður gærdagsins er þegar hann Jolli betur þekktur sem Scorpion ~ Tacco kom með þá yfirlýsingu að hann ætli að hlaupa hringinn í kringum salinn á G-streng einum til fata ef þeir tapi fyrir CUC. Verður spennandi að sjá hvort hann standi við orð sín ef þeir tapa.

Annars er lítið annað að gerast en ég skelli inn nýju efni, úrslitum eða eitthvað þegar nær dregur.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius