Stutt viðtal við teamRED – LuSharp (C)

Góðan dag viltu vera svo vænn að kynna þig fyrir þá sem ekki þekkja þig ?

teamRED – LuSharp: Skarphéðinn Grétarsson eða LuSharp, er eitraður gaur og einn sá harðasti í bransanum. Hef spilað þennan leik of lengi.

Hvernig lýst þér á hvað Deildin er að gera með t.d. 2 deildum og nú stjörnuleikinn ?

teamRED – LuSharp: Þetta er fínt og mjög gaman. Eina sem að mér finnst að þessu er að það ættu að vera fastir spilatímar frekar en að liðin ráði þessu sjálf. Svo er alltaf gaman að stjörnuleikjum og ég vona að þessi verði skemmtilegur og hraður leikur með skítugum hausskotum.

Nú varst þú beðinn um að sjáum að kjósa í Stjörnuleik Deildarninar #1 í teamRED hvernig lýst þér á þitt lið ?

teamRED – LuSharp: Ég tel að þetta sé sigurlið engin spurning. Valdi leikmenn sem að mér finnst hafa skemmtilegan stíl og gaman er að spila með og horfa á. Þessi leikur á náttúrulega að vera fyrir þá sem að horfa á hann.

Hvernig helduru að leikar muni enda ?

teamRED – LuSharp: 2 mjög sterk lið, þetta fer í oddaleik vona að við hömrum þetta í gegn í lokin.
Eitthvað að lokum?

teamRED – LuSharp: Áfram mitt lið.

Ég vil þakka LuSharp fyrir þetta stutta viðtal og óska honum og hans liði góðs gengis í leiknum. :)

Ég vil mina men á að leikurinn er núna næsta Laugardag :) eitthvað á þessum tima 20:00 og 21:00.