Piltur að nafni Jón einnig þekktur sem denial msg-aði mig á ircinu og langaði að vara mig við ircara sem kallar sig trix.

Eftir því sem mér skildist best þá er þessi trix að stela steam accounts með því að þykjast vera IEL admin og sé að undirbúa undankeppni fyrir annað IEL mót.

Hann biður fólk að adda sér á msn ( trix@counter-strike.esports.is ) og reynir svo að sannfæra fólk um að láta sig fá user account og password til að skrá það sem admin í keppnina ( ekki spurja mig hvers vegna) en breytir svo um leið account passwordinu og stelur þanning accountinum.

Vildi bara að fólk vissi þetta svo að þetta komi ekki fyrir hjá fleirum.

P.S þessi aðili er engan veginn tengdur eSports.is