SeveN vs dummies in Game í EuroCup dummies in Game og SeveN spila um laust sæti í kvöld kl 18:00. Þetta verður án efa spennandi leikur og verður gaman að sjá þessi lið mætast en þau spiluðu síðast í opinberlega á Skjálfta 3|2005 í úrslitum þar sem SeveN fór með sigur.

Ég tók einn leikmann úr hvoru liði örstuttu tali og spurði þá út í leik kvöldsins.

Ég byrjaði á að tala við Hólmar aka diG|Drulli.

RevolveR: Nú eruð þið að fara að spila við SeveN í kvöld um sæti í EuroCup sem er án efa öflugasta netdeildin sem er haldin í evrópu um þessar mundir, hvernig legst leikurinn í diG menn ?

Drulli: Leikurinn leggst þokkalega í menn, hefðum þó getað undirbúið okkur meira.

RevolveR: SeveN fengu Rúnar levi til að vera 5ta mann eftir að goltti var látinn fara, helduru að þetta eigi eftir að verða ykkur til góða eða takiði alltaf eins á andstæðingnum hver sem hann er ?

Drulli: Skiptir ekki máli hvaða mönnum þeir spila út, þeir verða alltaf SeveN… en auðvitað er Rúnar 10x betri en golttttti ef hann kemst í gang.

RevolveR: Hvaða meðlimur diG finnst þér vera MVP og hver heldur þú að sé sá besti sem SeveN tefla fram ?

Drulli: Vonandi verður það Arnar Vargur, og er mex ekki bestur í SeveN? hmm…

Ég tók einnig leikmann seven tali en fyrir valinu varð andrig

RevolveR: Nú eruð þið að fara að spila við diG í kvöld um sæti í Eurocup,hvernig legst þessi leikur í ykkur seven menn ?

andrig: Bara vel, mætum öryggir til leiks eins og alltaf, þótt við séum í smá veseni með fimmta, þá þurfum við fara bara yfir þetta með Rúnari.

RevolveR: Nú fenguð þið levi til að spila þennan leik með ykkur en hann hefur ekki spilað í þó nokkurn tíma, helduru að þetta hafi mikil áhrif á skipulag ykkur í leiknum ?

andrig: Vonandi ekki.. Rúnar hefur alltaf staðið sig og þurfum við bara aðeins að breyta stöðum.. ekkert mikið

RevolveR Hvern telur þú vera mikilvægasta leikmann SeveN og hvaða leikmaður diG gæti strítt ykkur í þessum leik ?

andrig: denosinn eins og alltaf, squadleaderinn er alltaf mikilvægastur…. sjáum til með hitt

Ég vil þakka bæði Hólmari og Andra fyrir þetta.

Leikmenn sem byrja leikina eru:

diG: Drulli - Vargur - LuSharp - Calculon - knifah
SeveN: andrig - denos - roMim - mexican - levi

Leikurinn hefst kl 18:00
HLTV: hltv002.games.inet.tele.dk:27066