Ég hef ákveðið að reyna eftir fremstu megni að segja frá CPL WT ferð ice gaming til Englands helgina 2-4. sept.

Hér mun ég setja inn HLTV-ips á leikina þegar þeir verða sem og öll úrslit frá ice gaming.

En til að hafa þetta formlegt þá er best að byrja á byrjuninni með því að nefna þau lið sem munu mæta:

Begrip
MiBR
Team9
Mousesports
Abit Strike
AllTheRage
Clan IT
mTw
Catch Gamer
4Kings
ice gaming

Mótið mun fara fram í Sheffield á Englandi nánar tiltekið: Magna Science Center dagana 2-4.sept nk.

Þeir sem spila fyrir hönd ice gaming á mótinu eru:

sPiKe
entex
DynaMo
blibb
zombie

Auk þeirra fara: mud og HelgiM.

Flogið verður út þann 31. ágúst nk en gist verður á hótelinu Sheffield (Arena)

En ferðin er styrkt af eftirfarandi fyrirtækjum: Dominos, Tölvuvirkni og henson.
Á næstu vikum mun ice koma sér fyrir framan alþjóð, en nánar verður fjallað um það á næstu dögum.