Sælir.

Ég hef gert spá fyrir sex efstu sætin á Skjálfta, og til þess fékk ég 13 vel valda einstaklinga úr CS samfélaginu til að kjósa hvaða lið þeir teldu að ættu eftir að pluma sig á næstkomandi Skjálfta. Ég ætla að hafa þann háttinn á að ég segi á hverjum degi hvaða lið sé í hvaða sæti, ég er búinn með 6 og 5 sætið og nú er komið að því fjórða.

Góða skemmtun.

- - -

4. Clan SeveN (37 stig)
Lineup: andrig, deNos, Lanzo, levi!, Trasgress & WarriorJoe.

Svei mér þá. Þetta kom mér heldur betur á óvart, að SeveN sé spáð 4 sæti. SeveN hafa þrátt fyrir það ekki komið á Skjálfta og náð hærra en 4 sæti ef mig misminnir ekki.

andrig, stjórnandi SeveN, ætlar sér mikla og góða hluti með þetta lið. Heimasíðan þeirra er að renna í hlað og er búist sterklega við að hún komi upp fyrir Skjálfta. Hún á að vera á svipuðum nótum og eSports.is sem og aðrar stórar community síður út í löndum.

SeveN menn hafa 2 landsliðsmenn innanborðs, þá deNos og andrag. Gaman verður að sjá hvort að þeir eigi eftir að standa sig undir pressu á Skjálfta sem og hinir leikmenn SeveN liðsins.

MIKILVÆGASTI LEIKMAÐURINN

Ég verð að segja deNos við þessari spurningu. Ég hef lengi verið mikill aðdáandi hans sem spilara, og hefur hann staðið sig vel í gegnum tíðina. Maður hafði ekki hugmynd hver hann var þegar hann var í Quo, og svo gekk hann til liðs við SeveN og er orðinn að landsliðsmanni. Ég mæli með því að fólk fylgist með honum.

VIÐTAL VIÐ [SEVEN] TRASGRESS

Sæll og blessaður. Villtu gerast svo vænn að kynna þig fyrir lesendum huga.is?
Já, Guðmundur heiti ég og geng undir nickinu Trasgress.

Nú var ykkur spáð í 4 sæti á komandi Skjálfta, hver eru þín viðbrögð við því?
Persónulega tek ég ekki mikið mark pre-skjálfta spám.

Hvert er markið sett á Skjálfta?
Við í seven stefnum á að vinna skjálfta og teljum okkur eiga möguleika á því.

Hvaða lið telur þú að eigi eftir að berjast í úrslitum Skjálfta?
Ice Vs Seven

Hvaða lið heldurðu að eigi eftir að valda vonbrigðum?
Úff nú veit ég ekki, fylgist nú ekki mikið með liðum fyrir utan top5 svo ég get harla tjáð mig um það.

Hvaða leikmaður finnst þér mikilvægastur innan SeveN liðsins?
Myndi segja AndriG, hann er “límið” í seven myndi ég segja. Alltaf hægt að reiða sig á það að hann haldi ró sinni og spili sinn leik.

Hvaða leikmaður telur þú að eigi eftir að koma mest á óvart á Skjálfta?
Hmm, shock Carlito tel ég að eigi eftir að standa sig vel fyrir shock liðið

Frábært og þakkir. Einhver lokaorð?
Þakka fyrir mig og Áfram Seven LIFI VERLSÓ !

- - -

Þeir sem kusu:

- Adios // Calculon
- Adios // roMim
- [.GOTN.]Andri
- [.GOTN.]aNexiz
- ice ~ entex
- ice ~ Vargur
- [mta] fixer
- [mta] gaui
- NoName`Felix
- NoName`Lazlo
- [SeveN] andrig
- [SeveN] RedNeck
- shocK ~ auddz
- shocK ~ Carlito

Skjálfti 2|2005 spá:

1. ???
2. ???
3. ???
4. SeveN (37 stig)
5. <a href="http://www.hugi.is/hl/providers.php?page=view&contentId=2212989“>NoName (18 stig)</a>
6. <a href=”http://www.hugi.is/hl/providers.php?page=view&contentId=2210492">shocKwave (16 stig)</a