Jæja við erum mættir ál anið og þetta er stuð!

Í gær mættum við á leifstöðina galvaskir, og byrjaði þetta með því að helvítis tollverðirnir fóru að fokkast í mér útaf ég mátti ekki taka myndir af tollgæslunni (?)

Jæja, svo fórum við í loftið eftir að hafa smettað okkur með ógeðslegasta mat í heimi og haldið var á stað, sváfum flest allir og svo byrjaði gamanið þegar vélin var að lenda!

Þá gjörsamlega sprakk hausin á mér og ég fékk þrýstingarveikina eins og ég kalla hana! augun á mér gjörsamlega trylltust og ennisholurnar voru að springa, já gott fólk romim fór að VÆLA!

Þegar var komið á Kastrup var tekin taxi á hið GEÐVEIKA hótel Glostrup parkhotel, ég og dói komum okkur vel fyrir saman í hjónarúminu og byrjuðum að specca eðal danskt klám! Svo biðum við eftir Hjörra og Danna sem gista hjá frænku danna!

Farið var á strikið að versla bling vörur, á borð við keðjur, krossa, og geðveikar húfur!

Svo var haldið á fínasta net-cafið í dk, boomtown!
Það var smooth place og frekar “pro”, stór skjár sem var að sýna cs videos og alskonar gaming vörur og stuff! Við keyptum okkur allir icemat eftir að hafa verið að HSA hart með þeim á netcaffinu!

Svo var farið heim kl 6 og gjörsamlega rotuðumst uppí rúmi við að horfa á klám og AnaCONDAS! svo kl 9 fórum við á eikkurn geðveikan pizza stað sem er rétt hjá okkur, fórum í pool og drukkum ískaldan bjór úr sjálfsala! :D;D

í dag vöknuðum við bara snemma fórum að fá okkur morgunmat á þessu lúxus hóteli, fórum í mollið vorum að kaupa okkur svitabönd, fleiri húfur, brúsa og allt sem sveittur nördi þarf að hafa erlendis!

Svo tókum við bara taxið hingað á staðinn og þetta byrjaði vel, tölvan hans aron's startaði sér ekki og ég og grímur höfðum gleymt öllu draslinu okkar uppá hóteli! það reddaðist og hér sit ég og LOLLA!!

LATER farinn að testa counter! eða jafnvel WOw! :D