Eurofighter Typhoon Breska leikjafyrirtækið <a href="http://www.rage.co.uk/“>Rage</a>, sem þekktast er fyrir litríka skotleiki eins og Incoming, gefur út á næstu vikum flugleik sem nefnist Eurofighter Typhoon.

Það væri ekki í frásögur færandi nema að leikurinn gerist á Íslandi hinu fagra og fær fólk þarna tækifæri til að sprengja upp ýmsa þekkta staði á landinu. :)

Til að ná okkar fagra landslagi sem best þá eru notuð svokölluð Digital Elevation Maps (DEM), eða ”Stafræn hæðarkort“.

Það verður gaman að sjá hvernig til tekst og vonandi náum við að fá eintak til skoðunar þegar að leikurinn kemur út.

Áætlað er að Eurofighter Typhoon komi út þann 4. maí nk.

Nánari upplýsingar og skjáskot á <a href=”http://www.rage.co.uk/flash/gamers.html">heimasíðu Rage</a>.
JReykdal