Ísland 19-11 Bretland Nei það var ekki einungis landslið Ísland í knattspyrnu sem var að spila í dag því að Counter-Strike lið Íslands spilaði í dag gegn Bretum í ClanBase NationCup.

Leikið var í de_train og byrjuðu Íslendingar sem T. Fyrri hálfleikur endaði 12-3 fyrir Íslendingum og endaði Cyru$ lang efstur á meðal Íslendinga. Síðari hálfleikur var ekki alveg eins mikil einstefna en Bretar unnu þann part 8-7 þannig í heildina 19-11 fyrir Íslandi. blibb endaði efstur sem CT.

Þetta var fjórði leikur landsliðsins í þessari keppni en Íslendingar eru búnir að vinna alla sína leiki. Gegn Írum, Dönum, Svisslendingum og svo loks Bretum. Íslendingar eru efstir í sínum riðli en eiga einn leik eftir en það er gegn Slóvakíu.

Næsti leikur landsliðsins er 3. júní n.k. gegn Belgum.

Lineup Íslands:
sPiKe, blibb, Some0ne, Cyru$, MrRed

Lineup Bretlands:
ZaG, DucK, kardy, m1ke, DoZ

#Team-Iceland