GotFrag er að uppfæra síðunna þeirra á meðan þetta er skrifað. Nýja síðan kemur með margar nýjungar, eins og til dæmis premium member system. Hér fyrir neðan má sjá hvað nýja síðan á eftir að bjóða.


Síðunni verður skipt þannig hver leikur sem GotFrag fjaller um hefur sína eigin frétta síðu, þannig að maður þarf ekki að leita að fréttum lengur um leikinn sem maður vill lesa um. Einnig verður spjallborðið og demo hluturinn mikið endurbættur. Þó að maður sé ekki premium member, þá hefur síðan mikið meira upp á að bjóða heldur en sú gamla. Það verður einnig hægt að senda skilaboð á milli notanda. GotFrag keyrir í augnablikinu á 2 serverum, en það verður breytt í miklu stærra kerfi, sem er búist við að verði á um 1ö serverum eða svo.

<hr>

Premium kerfið hjá GotFrag hefur mikið upp á að bjóða. Reyndar er það svo mikið að maður þarf að hætta að vinna til að geta komist yfir þetta allt ;)

Sem premium member fær maður aðgang að ótrúlegustu hlutum. GotFrag verður með sína eigin Internet sjónvarpsstöð sem á eftir að sýna Leikjamyndbönd, live leiki og annað tölvuleikja tengt efni.

Einnig hafa premium meðlimir aðgang að myndböndum sem “almenningurinn” fær ekki aðgang að strax, og geta þeir gefið myndböndunum einkun og spjallað við þá sem gera myndböndin.

Einnig geta premium meðlimir lesið mjög in-depth hjálp hvernig maður masterar leikinn sinn, skrifað af professional gamers. Og ekki nóg með það, heldur á að vera hægt að senda fyrirspurnir til þeirra um t.d. hvernig er best að spraya með ak. Spurningunum verður svo svarað svo allir premium meðlimir noti góðs af.

Þetta voru bara svona helstu hlutirnir sem nýja síðan hefur upp á að bjóða, og er hægt að lesa sig til <a href="http://www.gotfrag.com/upgrading/upgrading.html">hér</a> um alla nýja fídusa sem síðan á eftir að bjóða upp á. Nýja síðan ætti að vera tilbúin í nótt.

<hr>
Update: Síðan er komin, og er hún glæsileg að skoða. Þess má einnig geta að fyrstu vikuna eru allir premium members.