Jæja, við vöknuðum um eittleitið hérna sem er kringum sex heima :)

Við vorum seedaðir svo vel að við sluppum við fyrsta leikinn og spilum gegn Forsaken í næstu umferð, sem verður erfiður leikur , Forsaken er talið vera eitt af betri bandarísku liðunum hérna á staðnum.

Ég er að bíða eftir því að fá nýtt skjákort/tölvu og er að bíða eftir því að CompUSA fari að selja mýs hérna því að mín er eitthvað gengin af göflunum.

við völdum skemmtilega staðsetningu í Bring your own Computer svæðinu, en SK,NoA,3D og Mousesports eru í næsta skrefi við okkur.

Ég legg ekki ennþá í að senda myndir því að internetið er að bösta út 1kb's rúmlega.

sendið svo hugboð til guðs um að láta okkur ganga vel ;)