Fyrsti dagur CPL byrjaði í dag og við mættum “ferskir” eftir að hafa vaknað klukkan 4.30AM en klukkan er núna orðin 3.15PM , eða að nálgast 12 tímar síðan að við vöknuðum eftir dásamlegan 3 tíma svefn.

Þegar við tékkuðum okkur inn þá rak afgreiðslukonan upp stór augu þegar að golli sýndi henni vegabréfið sitt, og merkti miðann hans sér “SSS” og þegar við vorum komnir að metal detecturunum þá kom önnur kona og skrifaði “CODE RED” á miðann hans, golli var látinn fara aðra leið en við, þurfti að fara úr skónum og var þreifað á honum og ýmisslegt, hann slapp þó við plasthanskann og annað þaðan af verra.

Þegar að við lentum í dallas þá fórum við og eltum gmpo í gegnum allt og söfnuðum saman töskunum okkar, og fórum svo útá bílastæði þarsem að við ætluðum að taka leigubíl uppá hótel, en þessir ríku svíjaskrattar fengu fríja Limósínu, complements of AMD.

Eftir að við mættum á hótelið hentum við okkur allir í sturtu enda orðnir ágætlega myglaðir eftir löng flug og flugvallarhlaup.

Síðan fór golli að væla undan hungri (as usual) og við fórum út og ætluðum bara að labba á næsta veitingastað sem við fundum, en eftir að við fórum úr skjóli hótelsins þá var svo mikið rok að maður hefði getað surfað göturnar með handklæði sem segl.

Tókum leigubíl á stað sem heitir “Wendy's” en það er svona wannabe McDonalds staður (sem við vissum ekki fyrst) nema það að þeirra hamborgarar eru kubbóttir [] .. eldhúsið fullt af mexíkönum sem elduðu vægast sagt hræðilega máltíð handa okkur, en hey allir saddir.

Síðan fórum við aftur á hótelið og skráðum okkur inn á CPL og skoðuðum svæðið, en þetta pleis er ekki mikið stærra en þar sem Skjálfti er haldinn, en 40% af plássinu er undirlagt af Intel,Nvidia og allskonar fyrirtækja básum og allt er uber snyrtilegt, sem gefur þessu skemmtilegan blæ.

Uppúr tvö (2PM) okkar tíma náðum við í leigutölvurnar okkar sem voru allar splendid, nema sú sem ég fékk en það er algjört hræ.

Networkið hérna er að virka vel, en outside internet er í lamasessi svo að myndirnar verða að bíða örlítið.

með kveðju frá Dallas,
Óli