Fleira frá CPL Fyrst…nýjar myndir af ævintýrum p1mpa í köben.
Þeir eru orðnir nokkuð margir hérna. Smegma, Roland, H0ddi (tímabundið á Jótlandi), Fluffster, Bandi, Aquatopia, JoshuaC og undirritaður auk sérlegs sendifulltrúa frá Svíðjóð, IC-Fox.

Við fórum og skoðuðum locationið í gærkvöldi og hann er til að hafa langa sögu stutta, án nokkurra málalenginga eða útúrdúra, sem eiga það til að lengja sögur án nokkurs tilgangs sem gæti bætt frásögnina……úti í RASSGATI!

Setupið var svosem allt í lagi en ekkert gríðarlegt. Tölvurnar líta ágætlega út og allt það en þetta er örlítið miðað við okkar elskulega skjálfta.

Svo fóru keppendur á location í morgun til að skrá sig. Þeir biðu í klukkutíma í skítakuldanum og luku skráningu á einni mínútu. Svo þurftu þeir að koma sér aftur í bæinn því þeir þurfa ekki að keppa fyrr en kl. 20 í kvöld.

Taqtix varð eftir því þegar cs var búinn að ljúka sér af þá var ekkert vitað um WC3 framganginn. Æðislegt skipulag eða þannig.

En við ætlum að kíkja þarna úteftir á eftir og sjá dæmið í action.
JReykdal