Jæja, þá eru bara nokkrir tímar (13) þar til við höldum frá skerinu á leið til kóngsins köbenhavn til keppni í CPL-Europe.

Murkarar munu halda uppi heiðri landans í CS og Taqtix úr Drake mun sjá um Warcraft hliðina og í sameiningu á að rúlla upp evrópubúum út og suður.

Við munum flytja fréttir og slúður hérna eftir þörfum og vonandi sem flestar myndir.
JReykdal