Meðlimir SK.swe skrifa undir 1 árs samning Meðlimir <a href="http://www.schroet.com">Schroet Kommando - Sweden</a>(1/5 Norway reyndar), eins besta Counter-Strike klans heims í dag og núverandi World Cyber Games meistara, skrifuðu nýlega undir 1árs samning við Schroet Kommando sem tryggir það að þeir verða hjá liðinu allavega út næsta ár.

Þeir skrifuðu undir samskonar samning fyrir rétt um ári síðan og virðist það hafa reynst báðum aðilum það vel að þeir ákváðu að halda áfram - þess má geta að með þessum samningum fá þeir mánaðarlaun fyrir að spila og æfa Counter-Strike og fá þeir líka ferðakostnað á öll helstu mótin greiddan.

Það var einnig tilkynnt að Element sé í fríi þessa dagana og að SpawN, sem spilaði með SK.swe á WCG í síðasta mánuði, muni koma í hans stað á CPL Denmark mótinu en MurK.cs mun einmitt taka þátt í því móti og hópferð á vegum skjálfta verður farin til að styðja MurK'arana gegn þessu ofur svíja-liði.

CPL Denmark lið SK.swe er því þannig skipað:

HeatoN
Potti
ahl
fisker
SpawN