<img src="http://www.clanbase.com/miscfiles/ec8_w134.gif“ align=right>MurK áttu að spila opnunarleik tímabilsins í EuroCup gegn hinu virta clani Advanced Online Losers(betri en nafnið gefur til kynna ;) en vegna mikilla breytinga í liðsskipan nýverið(sbr. grein frá MurK-Krissa hér til vinstri) ákváðu þeir að nýta sér þá reglu að liðin mega fresta einum leik á hverju tímabili, svokallað ”wildcard“.

Leikurinn hefur því verið frestaður til næsta þriðjudags.

Í spádómum sem voru birtir á vefsíðu keppninnar var MurK ekki spáð góðu gengi gegn aL, eða 33 - 15 tapi. Meira um spádómana <a href=”http://www.clanbase.com/news_league.php?nid=96802&mid=0&lid=1062“>hér</a>.
Þeir sem eru skráðir notendur á vefsíðunni geta veðjað á leiki fyrstu umferðar, þar á meðal MurK leikinn, <a href=”http://www.clanbase.com/betprop.php?lid=1062">hér</a>.

MurK er eina íslenska liðið sem tekur þátt í EuroCup að þessu sinni, og því mikilvægt að allir fylgist vel með næsta þriðjudag og hvetji sína menn áfram!