EuroCup 8: Listi yfir lið sem var boðið Ein vinsælasta netleikjadeild í Evrópu, EuroCup, er að hefja sitt áttunda tímabil nú í haust.

EuroCup er “invite-only”, en aðeins 28 lið af þeim tæplega 1300 sem skráðu sig komast í EuroCup, restin fer í mismunandi neðri deildir Open Cup.

Íslendingum til mikillar ánægju þá komst eitt okkar allra besta lið í EuroCup að þessu sinni, nefnilega CPL hetjurnar í MurK.cs, en meðal mótherja þeirra eru lið einsog Adrenaline, A-Laget, 4Kings, mTw, ocrana og fleiri!

Deildin byrjar bráðlega, en áður en hún getur hafist verða nokkur lið að berjast um laus sæti í deildinni.

Við hér á Hugi.is/HL munum fylgjast vel með íslensku strákunum og gengi þeirra í EuroCup!

“Ízland bezt í heimi!”