Góða kvöldið/daginn, ég hef verið að spila afar mikið á Simnet serverum því þeir gjörsamlega owna, en það er bara einn alvarlegur galli á þessum serverum.


Á þessum undanförnum dögum þá hef ég verið að taka mjög mikið eftir því að það eru sífellt útlendingar að koma og eru MJÖG oft með höx, ég hef verið að taka eftir alla veganna einum á dag.


Þetta er orðið frekar pirrandi því að menn í sama lið og hann bara geta ekki látið sér segjast að vote ID hans út. HLguard og aðrar svindlvarnir eru ekki að nema sum höx, Admins á Simnet besta lausnin á þessu vandamáli sem ég fæ hugsað út í er að setja password á Simnet serveranna, sem yrði þá eftirfarandi í topic t.d á #counter-strike.is á ircinu, eða jafnvel bara skrifað hér einhverstaðar á Huga.is/hl.


Ég vona að það verði ekki mikið vesen úr þessu og fólk taki vel undir þessa hugmynd hjá mér. Adminar á Simnet ef ykkur finnst þetta of mikið vesen þá getiði náttúrulega bara sleppt þessu, en ég er í mikilli von um að þið takið undir hugmynd mína. Þetta hefur verið gert á Ground Zero servernum í DoD þar sem fullt af útlendingum hafa oft komið og laggað serverinn virkilega mikið stundum.

Takk.
Með vonir um góðar undirtektir.
(\_/)