Ég biðst afsökunar á þessum tilgangslausa korki, en ég gat bara ekki lengur orða bundist.

Nú er það mikið sport í counter-strike heiminum að saka mann og annan um svindl. Ég spila nokkuð mikið á public serverum landsins og þannig er mál með vexti að ég hef ALDREI á mínum lífs- (jæja 8 mánaða :D) -langa counter-strike ferli orðið vitni að svindli.

Núna í dag ákvað ég að leita hjálpar við að finna svar við þessari spurningu sem brennur á vörum mér, hvor möguleikinn er sá rétti?

nr1. Ég er gersamlega blindur og sé bara einfaldlega ekki alla þessa svindlara sem vaða á skítugum skónum yfir allt og alla.

nr2. 99,9% allra svindlásakana eru tómt kjaftæði og væl í mönnum sem er skotnir af sér betri spilurum.

Jæja, svariði mér nú í hreinskilni.

Kv. Exile | Hellchild
Pálmar