Ágætu cs-arar!

Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að GGRN hefur að undanförnu staðið fyrir víðtækri leit að herra cs. Satt best að segja hefur áhugi á þessu tiltæki farið fram úr björtustu vonum. Og þá meina ég langt frammúr björtustu vonum því sumir hafa farið offari og eru með ákefð sinni búnir að sigla þessu verkefni í strand. Við GGRN menn höfum verið að vinna hörðum höndum að uppsetningu myndasíðu í tengslum við þessa leit og í kjölfarið stóð til að setja fram könnun á Huga. Þá átti að skipa dómnefnd sem myndi kveða upp sinn dóm og í kjölfarið átti krýningin að fara fram. Af því getur því miður ekki orðið.

Það þarf ekki að koma stórkostlega á óvart að Lover-arnir hreinlega ærðust en þeir hafa einsog kunnugt er sérstakan áhuga á fegurð karlmanna. Nú hafa þeir sett fram Huga-könnun þar sem þeir eru sjálfir áberandi sem hugsanlegir kandídatar. Og þar með er þetta eiginlega sjálfdautt. Ég lýsti á sínum tíma yfir ákveðnum efasemdum þegar þeir Loverarnir komust með puttana í stjórnun hér á Huga og nú er sem sagt komið á daginn að þær áhyggjur voru ekki úr lausu lofti gripnar. Við í GGRN gefum þetta herra cs-dæmi því hér með frá okkur en sjálfir geta þeir haldið eina af sínum alræmdu orgíum í Love-hreiðrinu og gert sér ærlegan dagamun þar sem þeir krýna sinn herra cs.

Annars vil ég bara þakka öðrum (sem höfðu á þessu heilbrigðari áhuga) þátttökuna,

Kveðja,<br><br><a href="http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste