Ég er nú orðin frekar þreyttur á þessum undirskriftum sem að eru mest áberandi hér á counter-strike korkinum. Ekki nóg með að það sé rosalega mikið bull sem er skrifað heldur týnist það í myndum.

Þar sem að er í lagi að hafa undirskrift en þegar að undirskrift er orðin 640 x 480 px mynd þá er það orðið of mikið. Getur fólk ekki haft þetta innan skynsamlegra marka. Korkurinn counter-strike er orðin meira myndaalbúm heldur en korkur. Stjórendur huga ættu að banna “img” taggið eða allavegna hafa stærðar takmörkun á þessu. Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þetta hér er að þetta er mest áberandi hér á counter-strike korkinum.

Lifið heil

[.IFF.]Useless