Gleymdi sér við tölvuna

Suður-Kóreumaður lést í gær eftir að hafa spilað tölvuleik samfellt í 86 tíma. Maðurinn, sem var 24 ára og atvinnulaus, lést á netkaffihúsi í borginni Kwangju, en vitni segja að hann hafi setið þar frá því á föstudag án þess að taka sér hlé til að borða eða sofa.

Maðurinn missti meðvitund á þriðjudagsmorgun en komst fljótlega aftur til meðvitundar. Hann fannst síðan látinn á snyrtingu kaffihússins nokkru síðar.

<a href="http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=8 42071">tekið hérna</